Number of registered Mystery Shoppers

Að nafngreina starfsfólk

Ef viðskiptavinur okkar vill fá nöfn starfsmanna eða starfshópa í skýrslum frá okkur til þess að geta tekið beint á málum sem koma upp í skýrslunum, verður hann að gefa Better Business skriflegt loforð um að nota upplýsingarnar á siðferðilegan hátt og að einstaklingum verði ekki refsað. Allir starfsmenn eiga ennfremur að vera látnir vita að heimsókn frá Mystery Shopper muni eiga sér stað, hvaða þættir verða kannaðir og hvernig niðurstöðurnar verða notaðar. ´

Aldrei er hægt að styðjast við niðurstöður úr einni skýrslu! Ef starfsmaðurinn gaf röng svör er ekki úr vegi að halda að fleiri starfsmenn gefi sömu röngu svörin. Kannski þurfa allir starfsmennirnir meiri kennslu og þjálfun. Kannski myndi sami starfsmaðurinn svara öðruvísi daginn eftir.

Allir geta átt sína vondu daga, gleymt sér eða einfaldlega ekki haft kraft til að vera kurteisir og glaðlegir. Góð ráðgjöf, kennsla og þjálfun getur skipt sköpum í hegðun óuppörvaðra starfsmanna. Það er starf stjórnenda að sinna þessu og skýrslur Mystery Shoppera gefa góðar hugmyndir um svæði sem þarf að bæta. Einnig er í höndum stjórnenda að nota skýrslurnar á öruggan og réttlátan hátt.


Gasell Vinnare 2008