Number of registered Mystery Shoppers

Skýrslur online

AB Better Business hefur þróað kerfi fyrir allar skýrslur  ”BAFF ONLINE” sem gefur viðskiptavinum okkar aðgengi að skýrslum frá Mystery Shopperum, innan 24 klukkustunda eftir að heimsókn hefur verið framkvæmd. Flestir viðskiptavinir bíða þangað til allar heimsóknir fyrir hvert tímabil eru framkvæmdar, en þá er hægt að sjá allar niðurstöður, meðaltöl og heildina. 

Það er BAFF ONLINE að þakka að við getum fylgst með 100% hvaða heimsóknir þarf að framkvæma, hverjar þarf að staðfesta, gefa út skýrlur og hvaða atriðalistar hafa verið yfirfarnir eftir okkar gæðaferli.

Á þessari síðu getur þú lesið meira um okkar gæðaferli 

BAFF ONLINE kerfið er notað af mystery shopperum, verkefnastjórum og viðskiptavinum okkar, og er stöðugt verið að leita leiða til að bæta kerfið.

Við erum staðráðin í því að hjálpa þér svo þú getir átt Better Business!


Ótakmarkaður fjöldi tungumála

Skýrslukerfi Better Business er þróað sérstaklega með viðmiðunargreiningar í huga fyrir ótakmarkaðn fjölda landa og ótakmarkaðan fjölda tungumála. Hverja skýrslu er hægt að skoða á eigin tungumáli, á því tungumáli sem talað er innan fyrirtækis eða bæði.


Hvernig nota á skýrslurnar

Áður en byrjað er að þróa mystery shopping verkefni, er mikilvægt að það sé ákveðið hvernig skýrslurnar eigi að nýtast. Verkefni með einstaklinga sem framkvæma hulduheimsóknir eða mystery shopping rannsókn á fyrirtækjastigi. Hér er hægt að lesa um muninn 

Kerfið okkar efur kost á virkum viðmiðunargreiningum með mörgum möguleikum. Atriðalistar og skýringarmyndir, listar, töflur sem hægt era ð opna í Excel og html, samanburður á skýrslum, framkvæmdaáætlun, balance score card skýrslur og fl. Við getum gefið þér aðgang um leið og hver skýrsla er tilbúin eða þegar hver alda er búin, allt eftir því hvernig þú vilt að fyrirtækið noti skýrslurnar.

Við getum gefið öllum stjórnendum og starfsfólki sér lykilorð til að fá aðgang af skýrslunum sem þeir hafa leyfi til að skoða, við getum send tilkynningar í tölvupósti, við getum sett sérstakar skýrlur inn í power point þannig að þær séu tilbúnar fyrir stjórnarfundi, hvatningarfundi eða deildarfundi. Athugasemdir ættu að vera gefnar í trúnaði en verðlaun ættu að vera gefin í áheyrn allra. Við getum tekið þátt í fundum til að kynna hugmyndafræðina og niðurstöðurnar. Við getum einnig sett upp símafund með öllum eða hluta af starfsfólkinu innan fyrirtækisins til að gefa upp flestar upplýsingar og fylgjast með. Við getum einnig hjálpað við að skipuleggja vinnustofur og ráðgjöf til að þróa fyrirtækið út frá skýrslunum. Það er algjörlega þitt val hvernig þú vilt nota þjónustu okkar.


Gasell Vinnare 2008