Number of registered Mystery Shoppers

Skilgreining

Í Mystery Shopping eru einstaklingar notaðir sem hafa verið þjálfaðir/settir inní að upplifa og mæla síðan ferli þjónustu við viðskiptavini, með því að leika hugsanlegan/raunverulegan viðskiptavin og skila skýrslu sem lýsir upplifun þeirra í smáatriðum bæði tölfræðilega og í myndlíkingu.

Mystery Shopper getur einnig verið raunverulegur gestur eða tilrauna viðskiptavinur.  Hægt er að framkvæma ákveðinn fjöldi heimsókna í lotu.  Heimsóknir geta verið framkvæmdar með mismunandi tilgangi og mismunandi hátt t.d  tilraunaheimsóknir eða mælingar á grunn upplýsingum. Við mælum með því að haft sé samband við okkur og komið á fundi  til að nálgast og  fá fleiri upplýsingar.  


Markmið, Tilgangur og Ávinningur

Tilgangurinn með Mystery Shopping er að skilgreina þau svæði þar sem mögulega er hægt að bæta og gefa athugasemdir um hvernig þjónusta við viðskiptavini er háttað innan fyrirtækis, út frá yfirsýn viðskiptavinar. Fyrirtæki sem notast við Mystery Shopping á réttan hátt geta aukið sölu sína, hagnað og gert viðskiptavini og starfsmenn sína ánægðari. 

Ónafngreindur viðskiptavinur kemst að litlum vandamálum áður en þau verða of stór. Starfsmenn geta fengið viðbrögð við því hvernig þeirra framkoma er skynjuð af viðskiptavininum. Fyrirtækið fær sameiginlega eftirfylgni varðandi heildarhugmyndina og þjónustustigið en þetta er mjög hjálplegt verkfæri fyrir viðmiðagreiningu og áframhaldandi framfarir á öllum stigum fyrirtækisins. Mystery Shopping getur einnig verið notað sem hvatningarkerfi og sem liður í Balanced Score Card.


Mystery Shopping 

Við höfum viðamikla reynslu á að framkvæma hulduheimsóknir í verslunum, á veitingastöðum, hótelum, kvikmyndahúsum, bílasölum og fleira. Helsu mælingar eru varðandi hreinlæti, sýnileika vara, einkennisklæðnað, þjónustu við viðskiptavini og viðbótarsölu. Algengustu svæði sem þarf að bæta eru þjónustan og viðbótarsalan. Símtöl, tölvupóstur og mat á heimasíðu getur verið framkvæmt í hvaða iðnaði. Einnig höfum við reynslu í að meta dreifingaþjónustu.

Þegar byrja á að setja upp Mystery Shopping verkefni, er farið yfir sýn fyrirtækisins, markmið og þjálfun starfsfólks til að þróa betur atriðalistana. Skriflegu skýrslurnar geta einnig innihaldið hljóðupptökur og/eða video upptökur.


Gasell Vinnare 2008